Þegar á 18. öld er Elias nálægt því að afhjúpa leyndarmál guðanna. En Óðinn vill ekki deila valdi sínu og í refsingarskyni drepur hann fjölskyldu Elíasar. Spámaður segir Eliasi að það sé til framtíð og bætir við: „Finndu þann sem ræður yfir tímanum.“ En þegar Elias gerir það breytist alt og hann stendur frammi fyrir erfiðum valkostum.
Getur hann snúið baki við því sem hann hefur öldum saman barist fyrir að endurheimta?
Íþessari spennandi bók Malene Sølsten fá aðdáendur fantasíuþrileiksins Hvísl hrafnanna tækifæri til að kynnast betur ástsælustu persónunum úr hinum magnaða sagnaheimi bálksins og fá svör við spurningum sem brunnið hafa á vörum þeirra.


