Þessi bók fjallar um Orðaspjallsaðferðina sem er leið til að efla orðaforða og hlustunarskilning barna. Aðferðin felst í að kennarinn les bók með börnunum og velur orð úr bókinni til að kenna og leika með eftir fjölbreyttum leiðum. Jafnframt er áhersla lögð á samræður við bóklesturinn til að efla hlustunarskilning. Einnig eru gefin dæmi um hvernig hægt er að flétta Orðaspjalli inn í daglegt líf, leik og skapandi skólastarf úti og inni. Hrafnhildur Ragnarsdóttir prófessor fjallar um málþroska barna á leikskólaárunum og mikilvægi hans fyrir alhliða þroska þeira og velgengni í skóla.


